Borgarstjórnarhópur Samfylkingarinnar vill að Steinunn Valdís segi af sér
Innan borgarstjórnarhóps Samfylkingar er mikið rætt um að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður flokksins, eigi að segja af sér þingmennsku, að sögn Hjálmars Sveinssonar, sem er í fjórða sæti listans.
Hjálmar var spurður á Útvarpi Sögu á þriðjudag hvort honum fyndist að Steinunn ætti að segja af sér og tekur fram að hann hafi ekki haft frumkvæði að umræðunni.
„Ég svaraði bara undanbragðalaust og sagði það sem mér finnst, að það sé óhjákvæmilegt að hún geri þetta. Hins vegar væri það lúalegt af okkur borgarstjórnarframbjóðendum að fara að krefjast þess núna rétt fyrir kosningar, og ekki okkar hlutverk. Hún hlýtur að komast að þessari niðurstöðu sjálf. Það tekur sinn tíma og ég spái því að það sé ekkert mjög langt í að það gerist, án þess að ég hafi heimildir fyrir því,“ segir hann við Fréttablaðið í dag.
Aðspurður segist Hjálmar ekki sjá nein merki þess að þetta gerist fyrir kosningar á laugardag.
Spurður hvort sama eigi að gilda um Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingarinnar í borginni, segir Hjálmar þar ólíku saman að jafna. Dagur hafi þegið ríflega fimm milljónir, og takmarkað styrki við 500 þúsund krónur frá hverjum. Að sjálfsögðu sé enginn stikkfrír, en Dagur sé hæfur til að leiða listann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is