Telur vænlegast að ljúka Icesave með samningum, ekki fyrir dómstólum
Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, telur vænlegast að stjórnvöld ljúki Icesave deilum Íslands, Hollands og Bretlands við samningaborð en ekki fyrir dómstólum en fyrir liggur að náist ekki samningar með þríhliða viðræðum þjóðanna fer Icesave deilan fyrir EFTA dómstólinn.
Fyrr í vikunni barst stjórnvöldum bréf frá Eftirlitsnefnd EFTA þar sem skýrt er kveðið á um ábyrgð íslenskra stjórnvalda á Icesave. Þykir þeirri stofnun það óumdeilt að Ísland skuli greiða tilskildar bætur í takt við tilskipun þess efnis.
Steingrímur segir við Vísi.is að stjórnvöld muni svara bréfi Eftirlitsstofnunarinnar og taka til varna.
„Við munum að sjálfsögðu taka til þeirra varna sem við getum, þó að þetta álit ESA sé í sjálfu sér mjög skýrt og þeir hafni þeim sjónarmiðum sem íslensk stjórnvöld hafi reynt að halda í en það viðhorf þeirra eða sú afstaða kemur nú ekki á óvart. Veruleikinn er sá að við höfum staðið afar einangruð með þau sjónarmið okkar að okkur bæri ekki ótvíræð skylda í þessum efnum og það væri lagaóvissa til staðar. Nú er þetta ekki dómur heldur álit en það gengur gegn okkar sjónarmiðum eða fellur okkur í óhag.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
