Hanna Birna stærri en Sjálfstæðisflokkurinn en Jón Gnarr minni en Besti flokkur
Mun fleiri vilja Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem næsta borgarstjóra en Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmt nýrri könnun sem unnin var fyrir Morgunblaðið. Sögðust 41,4 prósent vilja að hún yrði áfram borgarstjóri, en aðeins 28 prósent ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmt sömu könnun
Að sama skapi er ósamræmi í könnuninni varðandi Jón Gnarr og Besta flokkinn. Jón Gnarr nýtur næstmests stuðnings í borgarstjórastólinn, eða 27,3% þeirra sem afstöðu tóku, en Besti flokkurinn fékk 43 prósent í sömu könnun. Rúmlega 20 prósent vilja Dag B. Eggertsson sem borgarstjóra.
Áberandi munur er á afstöðu kynjanna til næsta borgarstjóra Reykjavíkur, en sami munur birtist í könnun á fylgi flokkanna sem sagt var frá í gær. 38,4% karla sögðust vilja að Jón Gnarr yrði borgarstjóri, en 14,3% kvenna.
Allir hinir oddvitarnir, sem einhver nefndi sem næsta borgarstjóra, njóta samkvæmt könnuninni meira fylgis hjá konum en körlum. Þannig sögðust t.d. 27,2% kvenna vilja að Dagur yrði næsti borgarstjóri en 15,7% karla. Munurinn var þó ekki jafn mikill hjá öðrum oddvitum, en 43,5% kvenna sögðust styðja Hönnu Birnu og 39,5% karla.
Miðlun vann könnunina fyrir Morgunblaðið og var úrtakið óvenju lítið, eða aðeins 517 manns. Um 36 prósent eru óákveðnir í spurningunni um borgarstjórann og því eru aðeins um 400 svör á bakvið þessar niðurstöður.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is