Hollendingar telja ESA úrskurð styrkja samningsstöðu þeirra
Talsmaður hollenskra stjórnvalda segir að niðurstaða ESA um að Ísland hafi ekki mátt mismuna innlánseigendum á Íslandi og i útibúum bankanna erlendis styrkja samningsstöðu Hollendinga í Icesave-deilunni. Niðurstaðan sé í samræmi við þeirra sjónarmið og styrki stöðu þeirra.
„Við treystum því að þetta muni leiða til lausnar á Icesave-deilunni,“ segir hann í samtali við Financial Times.
Blaðð segir frá því að ESA hafi fyrirskipað Íslendingum að greiða 3,4 milljarða punda sem breskir og hollenskir innistæðueigendur hafi glatað á reikningum Icesave-netreikningum. Hafni ESA þeirri skilgreiningu að Íslandi beri ekki lagaleg skylda til að greiða. Segir FT að niðurstaðan muni styrkja stöðu samninganefnda Breta og Hollendinga. Samkvæmt FT hefur Ísland heitið því að greiða en hafi notað lagalega óvissu til að freista þess að fá betri samningsskilyrði.
Per Sanderud, forseti ESA, segir mikilvægt að neytendur viti að peningar þeirra séu öruggir en málið snúist um bankareglur milli landa.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is