Skilanefnd Glitnis fullviss að sjömenningarnir eigi falda sjóði um víða veröld
Aðalástæða þess að slitastjórn Glitnis höfðaði mál gegn sjömenningsklíku Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fyrir bandarískum og breskum dómstólum er sú að nefndin telur víst að allir eigi þessir einstaklingar vel falið fé en aðeins lög í Bretlandi og Bandaríkjunum veita stefnendum fordæmislausan og afgerandi rétt til að kafa hundrað prósent ofan í fjármál viðkomandi.
Viðskiptablaðið greinir frá þessu en sem kunnugt er hafa margir undrast hvers vegna stefna slitastjórnar Glitnir upp á 280 milljarða króna var lögð fram í dómstólum í New York en ekki hér á landi. Kom þetta fram á kröfuhafafundi slitastjórnar fyrir viku síðan.
Þeir sjö sem stefnt er eru Jón Ásgeir sjálfur, kona hans Ingibjörg Pálmadóttir, Pálmi Haraldsson, Þorsteinn Jónsson í Kók, Hannesi Smárasyni, Lárusi Welding og Jóni Sigurðssyni. Að auki var endurskoðunarfyrirtækinu Pricewaterhouse Coopers stefnt líka.
Þykir lögfróðum víst að hefði dómsmál verið höfðað hér á landi hefðu aldrei fengist jafn miklar heimildir til að leita uppi það fé sem sjömenningarnir kunna að hafa falið einhvers staðar í heiminum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
