Fimmtudagur 27.05.2010 - 12:14 - Ummæli ()

Umhverfisráðherra sker upp herör gegn utanvegaakstri. Mikið náttúruverndarmál

Sár í landinu eru lengi að gróa

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hyggst skera upp herör gegn utanvegaakstri hérlendis og beita til þess margvíslegum úrræðum. Þykir alveg ljóst að utanvegaakstur sé orðið töluvert vandamál en markmiðið með aðgerðaráætluninni er að stemma stigu við slíku.

Víða eru skemmdir sjáanlegar í gróðri landsins, ekki síst nálægt höfuðborginni, en mjög hefur færst í vöxt undanfarin ár að almenningur fari um óbyggðir á vélhjólum, fjórhjólum og vélsleðum. Þá eru hestamenn ekki saklausir heldur.

Listar ráðherrann upp nokkur atriði sem sérstaklega á að efla af þessu tilefni:

  • ·         Lagaramminn verður endurskoðaður og gerður skýrari
  • ·         Merking leiða utan hins hefðbundna vegakerfis verður bætt
  • ·         Ráðist verður í lagfæringar á skemmdum
  • ·         Löglegir vegir verða rétt skráðir á opinberum kortagrunnum, sem auðvelt verður
    að nálgast
  • ·         Unnið verður að lokun ósamþykktra slóða
  • ·         Leitað verður leiða til að bæta aðstöðu fyrir vélhjólafólk og akstursíþróttir
  • ·         Eftirlit verður hert, sérstaklega á viðkvæmum svæðum
  • ·         Átak verður gert í fræðslu, m.a. fyrir unga ökumenn og ferðamenn
  • ·         Unnið verður með ferðaþjónustu og útivistarhópum til að skapa aukna sátt um
    umferð útivistarfólks

Samkvæmt samtölum Eyjunnar við menn kunnuga löggæslu er vandamálið fyrst og fremst fjárskortur lögreglu undanfarin ár sem komið hefur í veg fyrir eftirlit. Fer lögregla lítið sem ekkert út af helstu þéttbýlisstöðum til eftirlits enda lögregluembætti almennt fámenn og fjármagn ekki fengist til að veita ferðamönnum alvöru aðhald á hálendinu eða á fáfarnari slóðum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is