Könnun: Besti flokkurinn með sjö borgarfulltrúa. Afhroð fjórflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn vinnur á í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Besta flokkinn og Samfylkinguna er á niðurleið. Fjórðungur kjósenda hefur ekki gert upp hug sinn.
Besti flokkurinn nýtur stuðnings 40,9 prósenta borgarbúa, sem myndi skila flokknum sjö borgarfulltrúum af fimmtán. Fyrir viku sýndi könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 flokkinn með átta borgarfulltrúa og hreinan meirihluta.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi samkvæmt könnuninni 26,7 prósent atkvæða og fjóra fulltrúa. Það er 5,6 prósentustigum og einum borgarfulltrúa meira en fyrir viku.
Samfylkingin missir fylgi milli kannana. Af þeim sem tóku afstöðu styðja 18,3 prósent flokkinn. Miðað við þann stuðning fengi Samfylkingin þrjá borgarfulltrúa.
Vinstri græn tapa einnig lítillega milli kannana, og mælast nú með stuðning 8,9 prósenta borgarbúa. Það myndi skila flokknum einum borgarfulltrúa, en hann fékk tvo í borgarstjórnarkosningum 2006.
Aðrir flokkar ná ekki manni í borgarstjórn samkvæmt könnuninni. Alls sögðust 2,6 prósent styðja Framsóknarflokkinn og 1,5 prósent H-lista óháðra. Þá sögðust 0,6 prósent styðja Reykjavíkur-framboðið og sami fjöldi styður Frjálslynda flokkinn.
Af 800 borgarbúum sem hringt var í í gærkvöldi sögðust 26,1 prósent enn óákveðin, þrátt fyrir að kosið verði á morgun. Þá sögðust 12,8 prósent ætla að sleppa því að kjósa, eða skila auðu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
