Föstudagur 28.05.2010 - 07:01 - Ummæli ()

Enn ein óvissan: Mun færri hafa greitt utankjörstaðar en áður

Listi fólksins virðist heilla fólkið

Mun færri hafa greitt atkvæði utan kjörfundar hjá Sýslumanninum í Reykjavík vegna kosninganna á morgun en á sama tíma í síðustu alþingis- og sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Útlit er fyrir að þegar upp verður staðið hafi átta til níu þúsund manns greitt atkvæði utan kjörfundar í Reykjavík, svipaður fjöldi og í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin, en í síðustu kosningum hafa 12.500 til 13.000 atkvæði skilað sér þá leiðina.

Við lokun kjörstaðar í Laugardalshöll í gærkvöldi höfðu borist 5.734 atkvæði til kjörstjórans en á sama tíma fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar höfðu borist 9.600 atkvæði. Tæplega 226 þúsund manns eru á kjörskrárstofnum. Er það 9.767 kjósendum fleira en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is