Fáir treysta fjölmiðlum en vefmiðlar sækja þó mjög á
Almenningur í landinu treystir fjölmiðlum landsins lítið ef marka má könnun sem Capacent hefur unnið fyrir Creditinfo en þar sést að aðeins tæp 19 prósent aðspurðra treysta umfjöllun fjölmiðla um orsakir efnahagshrunsins. Um 40 prósent treysta fjölmiðlunum illa og meirihluti þeirra telur fjölmiðla vera hlutdræga og skiptir eignarhald þar miklu máli.
Vefmiðlar koma betur út úr þessum hluta fjölmiðlakönnunar Creditinfo en einn hluti til verður birtur síðar í sumar. Hafa þeir tekið áberandi forystu í fréttaflutningi enda tengjast þeir ekki ákveðnum einstaklingum eins og vandinn er hjá prentmiðlum.
Gögn Creditinfo sýna að gömlu miðlarnir eru nú að fjalla um sömu aðila og þeir fjölluðu mest um fyrir bankahrun. Vegna meiri hraða og fjölbreyttara efnisvals vefmiðla er þetta ekki eins áberandi hjá þeim. Einnig er þar um að ræða yngir miðla sem fjölluðu ekki um „góðærið“ á sama hátt.
Meginiðurstöður Creditinfo eru að umhverfi rótgróinna fjölmiðla eins og dagblaða og ljósvakamiðla hefur breyst til framtíðar og vægi vefmiðla hefur aldrei verið meira en nú. Traust fjölmiðlanna er laskað og dagblöð og ljósvakamiðlar munu þurfa lengri tíma til að ná upp trausti almennings á ný. Kostnaðaraðhald mun gera þeim erfitt fyrir og er líklegt til að gera fréttaflutning þeirra einhæfari. Á sama tíma sjá netmiðlar sóknarfæri í aukinni kröfu um fjölbreyttar fréttir hraða upplýsingagjöf.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
