Föstudagur 28.05.2010 - 15:26 - Ummæli ()

Forsætisráðherra: Stjórnmál eiga lítið upp á pallborð hjá fólki

Jóhanna er ekki hissa á almennu áhugaleysi á stjórnmálum

„Ég held að almennt þá séu stjórnmálin í þeirri stöðu núna að þau eiga lítið upp á pallborðið hjá almenningi,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Segist hún vona að fleiri atkvæði skili sér til flokks hennar í kosningunum sjálfum en skoðanakannanir gefi til kynna.

Þessu svaraði Jóhanna vefsjónvarpi Mbl.is.

Er það mat Jóhönnu að almenningur allur sé að skoða stjórnmálin nú í ljósi hrunsins fyrir einu og hálfu ári síðan. Þá hafi stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn ekki staðið sig í stykkinu og það séu stjórnmálamenn að súpa seyðið af í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is