Jesse James: Drap dýr og dýrkaði Hitler og SS sveitirnar
Einn hataðasti maður heims um þessar mundir er fyrrum eiginmaður óskarsverðlaunaleikkonunnar Söndru Bullock, Jesse James.
Hann vann til þessa með því að halda framhjá leikkonunni ástsælu en á sama tíma og málið komst upp á yfirborðið vann hún óskarinn í fyrsta sinn fyrir hlutverk sitt sem ákaflega góðhjörtuð kona í myndinni Blind Side.
Jesse átti fjölmargar hjákonur sem voru flestar jafn húðflúraðar og hann sjálfur.
Nú hefur stjúpmóðir Jesse ekki bætt ímynd hans heldur svert hana til muna með því að koma fram í viðtali við Radar Online og greina frá því að hann var vondur við dýr sem unglingur.
„Jesse drap litla rottuunga með því að sprauta í þá alkóhóli,“ sagði stjúpan en hún heitir Janina James Coan. „Hann var líka ákaflega heillaður af Hitler,“ bætti hún við.
„Hann heillaðist af því hvernig honum tókst að táldraga heila þjóð. Síðar fékk hann Hitler og SS sveitirnar á heilann og var hrifinn af Nasistunum. Hann hefur ótvíræðan áhuga á pælingunni um hreina, hvíta kynstofninn.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
