Jón Gnarr gerir líklega kröfu um að verða borgarstjóri. Meirihlutamyndun óljós
„Já, líklega,“ sagði Jón Gnarr í kosningaþætti Sjónvarpsins í kvöld þegar hann var spurður hvort hann geri þá kröfu að verða borgarstjóri ef Besti flokkurinn hafnar í meirihlutasamstarfi í Reykjavík eftir kosningar. Hann sagði Besta flokkinn þverpólitískt afl sem væri tilbúið að vinna með öllum flokkum.
„Ég myndi óska að Besti flokkurinn næði hreinum meirihluta. Ég held að það yrði þægilegast, að minnsta kosti fyrir mig,“ sagði Jón Gnarr.
Hanna Birna Kristjánsdóttir taldi það skyldu sína að útiloka ekki samstarf við neinn flokk. „Við höfum ekki leyfi til að útiloka samstarf við neinn flokk eða persónu, hvort sem það er Sóley eða Dagur. Ég er tilbúin að vinna með hverjum sem er,“ sagði hún.
Dagur B. Eggertsson útilokaði ekki samstarf við neinn flokk, en sagðist kvíða því að staðan eftir kosningar gæti orðið flókin. Hann sagði ekki hafa komið fram hvað Jón Gnarr og félagar vildu til dæmis í atvinnumálum og málefnum barna.
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna, útilokar meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn að loknum kosningum, þar sem grundvallarmunur væri á hugmyndafræði Sjálfstæðisflokks og VG og hún teldi að sá munur væri gersamlega ósamræmanlegur. „Ég veit ekki hvað þyrfti að gerast til að ég geti leitt Sjálfstæðisflokkinn áfram til valda,“ sagði Sóley.
Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins, taldi samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn á þessu kjörtímabili hafa gengið vel, en minnti þó á að almennt væri það Framsóknarflokknum til tjóns að starfa með Sjálfstæðisflokki.
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, sagðist reiðubúinn að vinna með öllum nema Framsóknarflokki. Hann sagðist ekki gera tilkall til þess að verða borgarstjóri aftur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
