Ný könnun: Meirihlutinn kolfellur í Reykjavík. Besti flokkurinn enn stærstur
Besti flokkurinn er enn stærsta framboðið í Reykjavík, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent fyrir Ríkisútvarpið.
Fylgi Besta flokksins er 38,7 prósent í könnuninni. Sjálfstæðisflokkurinn fær 29,6 prósent og Samfylkingin 21,5 prósent, en Vinstri grænir falla niður í 5,7 prósent. Framsóknarflokkur mælist með 3,5 prósent og önnur framboð innan við eitt prósent.
Besti flokkurinn fengi sex borgarfulltrúa, samkvæmt könnuninni, Sjálfstæðisflokkurinn fimm, Samfylkingin þrjá og Vinstri grænir einn. Innan við helmingur kjósenda Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Samfylkingar árið 2006, ætla að kjósa sömu flokka nú.
Núverandi borgarstjórnarmeirihluti kolfellur því með þessum niðurstöðum, enda fær Framsóknarflokkur engan borgarfulltrúa og Sjálfstæðisflokkur tapar tveimur. Samfylkingin tapar sömuleiðis tveimur, Vinstri grænir einum og F-listinn einum. Besti flokkurinn hirðir alla þessa sex.
803 svöruðu spurningum Capacent, eða um 60 prósent þeirra sem leitað var til síðustu þrjá daga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
