Föstudagur 28.05.2010 - 07:21
- Ummæli
()
Enn eru það lagalegu fyrirvararnir sem Alþingi setti við Icesave-samninginn sem fyrst og fremst standa út af í viðræðum Íslands við Bretland og Holland. Bretar eiga sérstaklega erfitt með að sætta sig við þá. Þá er einnig ósamið um vaxtaprósentu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Ósamið um lagalega fyrirvara. Samninganefndir ekki hist eftir þjóðaratkvæði
Enn eru það lagalegu fyrirvararnir sem Alþingi setti við Icesave-samninginn sem fyrst og fremst standa út af í viðræðum Íslands við Bretland og Holland. Bretar eiga sérstaklega erfitt með að sætta sig við þá. Þá er einnig ósamið um vaxtaprósentu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.Samninganefndir landanna þriggja hafa ekki hist síðan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars. Þær hafa þó verið í óformlegu sambandi.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa menn innan íslenska stjórnkerfisins ákveðnar áhyggjur af því að efnahagsþrengingar í ESB-ríkjum hafi áhrif á hugsanlegt tilboð Breta og Hollendinga. Þannig sé hætta á að bornir verði saman vextir á láninu til Íslands og til ríkja á borð við Grikkland.
Svíar hafa reynt að miðla málum á vettvangi Evrópusambandsins, samkvæmt heimildum blaðsins. Það hafa þó verið óformlegar þreifingar.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is