Viðskipti Laugardagur 29.05.2010 - 10:07 - Ummæli ()

Sveitastjórnarkosningar hafnar. Kosið í 77 sveitarfélögum í dag

Sveitastjórnarkosningar hófust þegar kjörstaðir opnuðu í flestum sveitarfélögum klukkan níu í morgun og verða kjörstaðir víðast opnir til klukkan 22 í kvöld. Alls er kosið í 77 sveitarfélögum og eru 2846 einstaklingar á framboðslistum eða um 1,2% kjörgengra einstaklinga í landinu.

Á kjörská eru alls 225.930, 113.663 konur og 112.267 karlar. Kjósendur á eru 9767 fleiri nú en á kjörskrá í síðustu sveitarstjórnarkosningum eða sem svarar 4,5 prósent. Nýir kjósendur sökum aldurs eru 18.772, eða 8,3 prósent af heildarkjósendatölunni.

Meiri er óvissa er talin um úrslit kosninganna en oftast áður. Þó hafa skoðanakannanir bent til þess að meirihlutasamstarf falli í mörgum stærstu sveitarfélögum landsins.

Eyjan mun fylgjast með framvindu kosninganna og úrslitum þeirra í kvöld.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is