Mánudagur 31.05.2010 - 07:32 - Ummæli ()

Gagnrýni Guðmundar Steingrímssonar á formann sinn fellur í grýttan jarðveg

Guðmundur Steingrímsson

Gagnrýni Guðmundar Steingrímssonar, þingmanns Framsóknar, á formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, hafa kallað fram hörð viðbrögð innan úr flokknum og hafa margir þeirri krafist afsökunarbeiðnar af hálfu Guðmundar. Hann lét að því liggja í gær að formanni flokksins væru um að kenna dapurt gengi víða í sveitarstjórnarkosningunum um helgina.

Fréttablaðið greinir frá. Sagði Guðmundur að sú endurnýjun sem Sigmundur Davíð hefði staðið fyrir hefði ekki verið merkilegri en svo að kjósendur margir hefðu hafnað Framsókn sem valkosti um helgina en flokkurinn beið afhroð á öllu suðvestursvæði landsins.

Hafa flokksfélög ungra framsóknarmanna gagnrýnt þetta og krefst minnst eitt félag ungra framsóknarmanna afsagnar Guðmundar sem þingmanns flokksins. Guðmundur var sem kunnugt er í Samfylkingunni áður en hann skipti yfir í Framsókn fyrir síðustu Alþingiskosningar.

Þessu eru flokksfélög ungra framsóknarmanna allsendis ósammála og krefjast Húnvetningarnir þess af Guðmundi að hann biðjist afsökunar á opinberum vettvangi. Ungir Framsóknarmenn í Skagafirði ganga enn lengra og skora á Guðmund að segja af sér þingmennsku og halda aftur í sinn gamla flokk, Samfylkinguna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is