Íslenska krónan mjög að braggast. Krónan styrkst um 14 prósent gagnvart evru
Íslenska krónan sýnir áfram batamerki og hefur ekki staðið betur gagnvart evru né bresku pundi síðan í mars á síðasta ári. Fæst nú ein evra fyrir 157,5 krónur og hefur krónan styrkst gagnvart henni um rúm fjórtán prósent frá áramótum.
Sama gildir um krónu gagnvart breska pundinu. Kostar nú 188 krónur að kaupa eitt pund en kostaði 202 krónur um síðustu áramót. Á sama tíma heldur skuldatryggingaálagið gagnvart Íslandi lækkað jafnt og þétt.
Morgunkorn Íslandsbanka telur að þessi styrking krónu eigi rætur að rekja til aukins gjaldeyrisinnflæðis vegna afgangs af vöru- og þjónustuviðskiptum og segja ólíklegt að inngrip Seðlabankans skýri styrkinguna nú enda hefur bankinn haldið sig fjarri gjaldeyrismarkaði allt frá því í byrjun nóvember á síðasta ári.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
