Viðskipti Þriðjudagur 01.06.2010 - 09:50 - Ummæli ()

Magnús Scheving gefur eftir höfundarrétt að Latabæ til að halda eignarhlut

Magnús Scheving hefur afsalað sér höfundarrétti að Latabæ gegn því að halda 40 prósenta eignarhlut í fyrirtækinu, samkvæmt frétt í breska blaðinu Telegraph í dag.

Blaðið segir að Latibær sé nýjasta fórnarlamb efnahagshrunsins á Íslandi. Landsbanki og Íslandsbanki fari fyrir hópi lánardrottna sem taki yfir stjórn fyrirtækisins og endurfjármagni um leið yfir 34 milljóna dollara (4,4 milljarðar króna) skuldir.

Yfir 30 lánadrottnar áttu 22 milljónir dollara hjá Latabæ, en þurfa nú að afskrifa stóran hluta þess og fá í staðinn 31 prósents hlut í félaginu. Þá skuldaði Latibær Landsbankanum 12 milljónir dollara, en því er nú breytt í 12 prósenta eignarhlut og 2,4 milljóna dollara lán.

Aðrir hluthafar, svo sem Jón Ásgeir Jóhannesson, þurfi að horfa á eftir eign sinni án þess að fá neitt í staðinn.

Að sögn blaðsins urðu Magnús og eiginkona hans að gefa eftir höfundarrétt að Latabæjarævintýrinu, en þau héldu honum áður í aðskildu fyrirtæki. Að öðrum kosti hefðu þau misst eignarhlut sinn.

KPMG telur að verðmæti LazyTown hafi rýrnað um meira en helming frá árinu 2007, en þá var fyrirtækið metið á 80 milljónir dollara. Haft er eftir Sigurði Stefánssyni, fjármálastjóra, að nýja matið sé þó ekki nákvæmt þar sem fyrirtækið hafi skilað hagnaði á síðasta ári, eða 2,1 milljón dollara í EBITDA.

Í yfirlýsingu frá LazyTown segir að fyrirtækið þurfi nú ekki að standa skil á neinum afborgunum næstu tvö árin, sem færi fyrirtækinu mikla möguleika á að vaxa.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is