Þriðjudagur 01.06.2010 - 08:30 - Ummæli ()

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir árásina. Utanríkismálanefnd fundar

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í morgun árás ísraelska flotans á óvopnaða skipalest á leið til Gasasvæðisins og krefst óháðrar rannsóknar því hvernig átökin áttu sér stað. Minnst tíu sjálfboðaliðar féllu eftir að ísraelski flotinn réðst inn í skipin á alþjóðlegu hafssvæði.

Í ályktun öryggisráðsins er auk þess krafist að Ísraelar sleppi skipunum sex og þeim 700 borgurum frá fjölda landa sem voru þar um borð. Þeim 700 sem voru um borð í skipunum, er haldið í einangrun og fréttabann er enn í gildi í Ísrael. Ísraelska innanríkisráðuneytið tilkynnti í morgun að um 50 hefðu fallist á að verða sendir heim, um 630 hefðu neitað og væru í varðhaldi.

Ráðið fer fram á að rannsókn á atvikinu verði gerð þegar í stað, hún verði að vera óháð, trúverðug og fyrir opnum tjöldum.

Niðurstaða öryggisráðsins fékks eftir margra klukkustundalangrar umræðu fram eftir nóttu. Endanlegt orðalag yfirlýsingarinnar fékkst með málamiðlun Tyrkja og Bandaríkjamanna, að sögn frétt á BBC. Tyrkir vildu enn harðara orðalag, enda hefur tyrkneski utanríkisráðherrann talað um að ísraelsstjórn hafi framið morð, en Bandaríkjamenn vildu síður að öryggisráðið fordæmdi atvikið.

Sendiherra Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum segir að ísraelskir sjóliðar hafi aðeins verið í sjálfsvörn, ráðist hafi verið á þá í skipunum með hnífum, kylfum og öðrum vopnum. Hann sagði skipalestina allt annað en mannúðarför.

Utanríkismálanefnd Alþingis kemur öðru sinni saman í hádeginu í dag vegna árásarinnar. Hávær krafa er um það innan stjórnarflokkanna að slíta beri stjórnmálasambandi við Ísrael.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is