Viðskipti Þriðjudagur 01.06.2010 - 12:51 - Ummæli ()

Róbert Marshall verður formaður allsherjarnefndar Alþingis

Róbert Marshall mun taka við formennsku í allsherjarnefnd Alþingis af Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, sem sagði af sér þingmennsku í gær.

Mörður Árnason tók sæti Steinunnar Valdísar á Alþingi. Fastlega er búist við að hann gangi í þær nefndir sem Steinunn Valdís sinnti, en hún var formaður allsherjarnefndar og átti sæti í samgöngunefnd, viðskiptanefnd og Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Þá var hún 3. varaforseti Alþingis.

Mörður verður þó ekki formaður allsherjarnefndar þó hann taki sæti í nefndinni. Samkvæmt heimildum Eyjunnar verður Róbert Marshall formaður nefndarinnar, en hann hefur setið í allsherjarnefnd frá síðustu kosningum. Líklegt er að gengið verði frá þessum breytingum á morgun.

Fyrir allsherjarnefnd liggja nokkur mál sem hafa verið ofarlega í umræðunni síðustu viku, svo sem stjórnlagaþing, hjúskaparlög, lyklafrumvarpið svokallaða og sameining lögregluembætta. Róbert hefur opinberlega talað fyrir stjórnlagaþingi og verður spennandi að sjá hvaða afgreiðslu það fær í nefndinni fyrir þinglok.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is