Viðskipti Mánudagur 07.06.2010 - 07:47 - Ummæli ()

Rannsaka hvort Deutsche Bank tengist markaðs- misnotkun Kaupþings

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, rannsakar meinta aðkomu ýmissa breskra viðskiptajöfra að skipulagðri markaðsmisnotkun innan Kaupþings. Þá er hlutur Deutsche Bank sérstaklega til skoðunar, að sögn breska dagblaðsins Guardian í dag.

Að sögn blaðsins er rannsakað hvort starfsmenn Deutche Bank hafi tekið þátt í meintri markaðsmisnotkun í viðskiptum með skuldatryggingar í Kaupþingi. Blaðið segir að grunur leiki á að mánuðum áður en íslenska bankakerfið hrundi hafi farið fram viðskipti með að minnsta kosti 500 milljónir evra, jafnvirði um 80 milljarða króna, úr sjóðum bankans til að hafa áhrif á skuldaafleiður. Tilgangurinn hafi verið að auka traust á bankanum.

Talsmaður Deutsche Bank sagði bankann ekki tjá sig um rannsóknina en sagði bankann þó veita SFO þær upplýsingar sem óskað væri eftir.

Rannsóknin beinist að því hvort starfsmenn Deutsche Bank hafi gerst brotlegir í störfum sínum í þágu Kaupþings en á þeim tíma veitti bankinn Kaupþingi ýmsa ráðgjöf.

Þá segir í blaðinu að nokkrir þekktir kaupsýslumenn í Bretlandi tengist afbrotunum, meðal annarra Tony Yerolemou, Kevin Stanford og fyrrverandi eiginkona hans, Karen Millen.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is