Þórsmörk svört, grá og líflaus. Vart náttúruparadís sökum öskulags
Þykkt lag af ösku liggur yfir Þórsmörk eins og sakir standa og fá nú margir áfall yfir hversu mjög þessi vinsæli útivistarstaður hefur breyst í svarta eyðimörk. Er hvergi grænt að sjá sökum kolsvartrar öskunnar og ljóst að langur tími mun líða áður en Þórsmörk verður aftur sú náttúruparadís sem hún alla jafna er.
Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, kemst svo að orði við Mbl.is að allt sé þar svart, grátt og líflaust. Enginn fari þar um án þess að þyrla upp skýjunum af ösku og ryki og helst detti mönnum í hug samanburður við eyðimerkur. Einhver gróður mun þó vera að kíkja upp úr öskulaginu á stöku stöðum í Þórsmörk og þá sérstaklega í Langadal.
Ferðafélagið hefur aflýst öllum helgarferðum sínum yfir Fimmvörðuháls í sumar en í staðinn verður boðið upp á dagsferðir úr Mörkinni að gosstöðvunum og til baka. Fólk verði þó að vera vel búið með rykgrímur og gps tæki enda sjáist ekki fram úr augum ef hvessa fer og sandfok hefst.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
