Bandarískur athafnamaður íhugar að bjóða fram nafn Besta flokksins í Kaliforníu
Bandaríski athafnamaðurinn Jonathan Taplin keypti á sunnudaginn lénið thebestparty.org, sem er nafn Besta flokksins á ensku. Taplin útilokar ekki, í samtali við Fréttablaðið, að bjóða fram undir nafni flokksins í Kaliforníu, en ríkisstjórnarkosningar fara fram í nóvember.
„Bandaríkin og Ísland glíma við sömu vandamálin,“ segir Taplin. „Við erum með nokkra ráðandi flokka sem tala alltaf um sömu hlutina og koma engu í verk. Mér finnst Jón Gnarr hafa áhugaverða nálgun.“
Taplin keypti á sunnudaginn lénið thebestparty.org, sem er nafn Besta flokksins á ensku. Hann býr í Los Angeles í Kaliforníu þar sem Arnold Schwarzenegger er ríkisstjóri, en efnahagshrunið hefur komið sérstaklega illa niður á ríkinu. Ríkisstjórakosningar verða í nóvember og Taplin útilokar ekki að koma á fót framboði Besta flokksins í Kaliforníu. „Hver veit hvað gerist? Eins og ég segi, hið gamla er að deyja og það nýja er að fæðast. Það eru alls konar skrýtnir hlutir að gerast,“ segir hann.
Jonathan Taplin var staddur á Íslandi á dögunum þar sem hann hélt meðal annars fyrirlestur á vegum auglýsingastofunnar Hvíta hússins. Hann segist samtali við blaðið ekki tengjast Besta flokknum á nokkurn hátt og neitar að hafa tekið þátt í að fjármagna flokkinn.
„Mér fannst skemmtilegt að tryggja mér lénið,“ segir hann. „Það var í boði þannig að ég hugsaði; af hverju ekki? Ég er bara áhorfandi og samfélagsrýnir. Það vildi svo til að ég var á Íslandi í skemmti- og viðskiptaerindum og kom á þessum skrýtna og áhugaverða tíma. Mér fannst það vera táknrænt fyrir eitthvað áhugavert.“
Umsvif Taplins eru talsverð. Hann starfaði sem tónleikahaldari á áttunda áratugnum og kom meðal annars að frægum góðgerðar-tónleikum fyrir Bangladesh árið 1971. Á meðal þeirra sem komu þar fram voru Eric Clapton, Bob Dylan og Bítlarnir George Harri-son og Ringo Starr. Hann hefur einnig starfað við kvikmyndagerð og framleiddi Mean Street, sem kom út árið 1973 og skaut leikstjóranum Martin Scorsese upp á stjörnuhimininn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is