Blóðugur niðurskurður breskra stjórnvalda. Leita til almennings um tillögur
Bresk stjórnvöld hyggjast leita til almennings um hvaða leiðir séu best til þess fallnar til að skera gríðarlega niður hjá hinu opinbera en skuldir Bretlands eru geigvænlegar og ný stjórn David Cameron verður að reiða niðurskurðarhnífnum hátt til lofts næstu misseri og ár.
Segir BBC frá því að fara eigi all nýstárlega leið í þessu efni og leita álits fólksins í landinu en ekkert slíkt hefur verið gert áður þar í landi. Munu embættismenn breska fjármálaráðuneytisins leita til einstaklinga, félagasamtaka og stéttarfélaga um vænlegustu leiðirnar til að spara og skera niður án þess að skert verði sú þjónusta sem almenningur telur alls ómissandi.
Sem dæmi um þann fjárlagahalla sem Bretar verða að takast á við gera áætlanir ráð fyrir að jafnháar greiðslur fari í vexti vegna lána landsins árið 2015 og fer í að halda úti heilbrigðis- og skólakerfi landsins í heild sinni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
