Segir ráðningu Lúðvíks Geirssonar í stól bæjarstjóra Hafnarfjarðar vanvirðingu
Valdimar Svavarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, gengur svo langt að segja það hreina vanvirðingu við bæjarbúa að Lúðvík Geirsson sé ráðinn bæjarstjóri á nýjan leik.
Bendir Valdimar á að Lúðvík hafi lagt starf sitt sem bæjarstjóri að veði með því að taka sjötta sæti Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar og verið þar kyrfilega hafnað.
Vísir.is greinir frá óánægju Valdimars en ljóst varð seinnipartinn í gær að samkvæmt samkomulagi nýs meirihluta í bæjarstjórn situr Lúðvík áfram í sama stóli og hann hefur setið undanfarin ár til ársins 2012 þegar oddviti Vinstri grænna, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, tekur við embættinu.
Valdimar finnur einnig að þessu og bendir á að fleiri bæjarbúar hafi skilað auðu en kosið Vinstri græna. Það hafi átt að segja fólki eitthvað en lítið mark sé greinilega tekið á vilja bæjarbúa.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
