Þriðjudagur 08.06.2010 - 18:15 - Ummæli ()

Skert starfshlutfall þýðir einnig skertar atvinnuleysisbætur

Skert starfshlutfall skerðir einnig bætur

Þeir einstaklingar sem minnkað hafa starfshlufall sitt hjá fyrirtækjum landsins skerða jafnframt með því atvinnuleysisbætur sínar komi til þess að viðkomandi missi starfið alveg. Þetta viðgengst þrátt fyrir að stjórnvöld hafi sjálf hvatt fyrirtæki til að lækka fremur starfshlutfall starfsmanna en segja þeim upp.

Pressan tekur málið fyrir en allmargir hafa brennt sig á því að um leið og þeir taka tilboði um skert starfshlufall skerðast líka bætur í framtíðinni.

Þarna gildir dagur á móti degi samkvæmt reglum Vinnumálastofnunar þar sem hver heill dagur í skertu starfshlutfalli gengur upp í einn dag sem starfsmaður hefur unnið sér inn í bótatímabil. Atvinnuleysisbótatímabil eru þrjú ár og ef starfsmaður hefur lengi verið í skertu starfshlutfalli gæti gengið verulega á rétt hans til bóta.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is