Viðskipti Þriðjudagur 08.06.2010 - 07:32 - Ummæli ()

VG og Samfylking skiptast á bæjarstjórastólnum. Lúðvík næstu tvö árin

Lúðvík Geirsson verður áfram bæjarstjóri í Hafnarfirði næstu tvö árin, eða fram í júní 2012 en þá mun oddviti Vinstri grænna, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, taka við embættinu út kjörtímabilið. Þetta er hluti af samkomulagi Samfylkingar og VG um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gærkvöld.

„Jafnframt var samþykktur málefnasamningur flokkanna og ítarleg verkefnaskrá til næstu fjögurra ára auk samkomulags um skipan í kjörin embætti á kjörtímabilinu.   Yfirskrift málefnasamnings Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Hafnarfirði er:  Velferð, lýðræði, atvinna og umhverfi fyrir fólkið í Firðinum,“ segir í tilkynningu frá flokkunum.

Hyggst nýi meirihlutinn „leggja ríka áherslu á að standa vörð um félagsleg sjónarmið og lausnir við rekstur bæjarins og tryggja um leið ábyrga fjármálastjórnun.  Þá verður  lögð sérstök áhersla á að bæta möguleika Hafnfirðinga til beinnar þátttöku í stefnumótun og ákvarðanatöku um mál sem þá varðar og efnt verður til margvíslegra aðgerða til að tryggja aukin áhrif íbúanna og aðgang að stjórnkerfi og upplýsingum. Leitað verður eftir víðtæku samráði og  samvinnu milli allra bæjarfulltrúa og starfsmanna bæjarins til að fylgja  eftir góðum árangri og bæta enn frekar rekstur bæjarins með hagkvæmni, aðhaldi og góðu skipulagi.  Meginmarkmiðið er að tryggja jákvæða rekstrarafkomu og auka á ný veltufé frá reksti.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is