Hagkvæmni strandsiglinga hér við land óumdeild. Mikill áhugi til staðar
Nokkrum árum eftir að mestallir flutningar í landinu fluttust af sjó og yfir á þjóðvegi landsins sýnir ný úttekt að strandsiglingar hér við land er samt sem áður álitlegur kostur. Áhuginn er til staðar og slíkir flutningar yrðu hagkvæmir. Viðhaldskostnaður vegakerfis minnkar til muna meðan öryggi akandi vegfarenda stóreykst.
Skýrsla þessi var unnin fyrir samgönguráðuneytið og var kynnt í dag.
Kemur í ljós að nægt flutningsmagn er til staðar til að réttlæta eitt strandferðaskip sem flutt gæti 180 til 230 TEU, tuttugu feta einingar, en áætlað árlegt flutningsmagn virðist vera fyrir 150 TEU árlega. Verulegur áhugi er á slíkum flutningum og hægt verði að bjóða samkeppnishæf verð við landflutninga.
Slíkt mun ennfremur leiða til aukinnar starfsemi við hafnir landsins og skapa þar störf þó vissulega fækki störfum bílstjóra á sama tíma.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
