Miðvikudagur 09.06.2010 - 12:25 - Ummæli ()

Þingmaður vill að ESB haldi aðildarfund sinn annan dag en 17.júní

Unnur Brá vill að ESB flytji til fundi vegna þjóðhátíðardagsins

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sté í pontu á Alþingi í dag og óskaði aðgerða ríkisvaldsins vegna þeirra ákvörðunar Evrópusambandsins að taka ákvörðun um aðild Íslands að sambandinu á þjóðhátíðardaginn 17.júní næstkomandi. Telur Unnur það niðurlægjandi.

Greinir Vísir frá því að viðbrögð Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, hafi verið sú að hann eða stjórnvöld gætu lítt aðhafst til að hafa áhrif á fundartíma Evrópusambandsins en benti Unni á að ræða við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is