Föstudagur 11.06.2010 - 16:03 - Ummæli ()

Jafntefli í opnunarleik HM í Suður-Afríku

Siphiwe Tshabalala skorar fyrsta mark HM í Suður-Afríku.

Suður-Afríka og Mexíkó skildu jöfn í fyrsta leik heimsmeistarakeppninnar í fótbolta nú síðdegis. Hvort lið skoraði eitt mark.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik, en þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Siphiwe Tshabalala fyrsta mark HM í ár og var það sannarlega glæsilegt. Hann slapp vinstra megin inn fyrir vörn Mexíkóa og þrumaði boltanum upp í efra markhornið fjær.

Það var svo Rafael Márquez sem jafnaði fyrir Mexíkó og tryggði þeim eitt stig. Hann fékk boltann aleinn út fyrir hægra markteigshornið eftir aukaspyrnu og þrumaði honum rakleiðis í fjærhornið.

Síðar í dag leika svo Frakkland og Uruguay í sama riðli.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is