Fleiri sækja um háskólanám, stjórnvöld boða niðurskurð
Á sama tíma og stjórnvöld boða frekari niðurskurð til háskóla landsins fer umsóknum um háskólanám fjölgandi. Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu. Umsóknum um nám við Háskóla Íslands fjölgaði um 18% frá fyrra ári, en hafði fjölgað um 20% frá árinu áður. Þá hefur fjöldi umsækjenda við Háskólann á Akureyri aukist verulega.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir útlit fyrir að skera þurfi niður framlög til háskólanna um 7,5 til 8% á næsta ári. Ljóst sé að árið í ár og það næsta verði mjög erfitt í þessum efnum.
„Þetta er auðvitað mikil blóðtaka þar sem þetta verður þriðja árið í röð sem við þurfum að skera niður,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Niðurskurðurinn komi niður á starfsfólki sem fái minna greitt þrátt fyrir aukið álag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is