Mánudagur 14.06.2010 - 20:21 - Ummæli ()

Heimsmeistararnir heppnir að ná jafntefli við Paragvæ

Ítalía og Paragvæ skildu jöfn, 1-1, í miklum baráttuleik í grenjandi rigningu í Höfðaborg í kvöld.

Paragvæ náði forystu í leiknum á 39. mínútu þegar Antolín Alcaraz skallaði boltann í markhornið eftir aukaspyrnu.

Daniele De Rossi jafnaði svo leikinn um miðjan síðari hálfleik eftir mistök Villara markvarðar. Pepe tók horn frá vinstri, Villara ætlaði að kýla boltann burt en sló vindhögg þannig að boltinn datt beint fyrir fætur De Rossi sem potaði honum í autt markið.

Heimsmeistarar Ítala voru í mesta basli við sterkt lið Paragvæ í leiknum.

Fyrr í dag vann Japan Kamerún, 1-0, og Holland vann Danmörk, 2-0.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is