Aðstoðarlandlæknir segir detox meðferð tilgangslausa og hættulega
Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir, segir detox meðferð sem Jónína Benediktsdóttir býður uppá tilgangslausa og jafnvel í sumum tilfellum hættulega. Hann segir það skyldu landlæknisembættisins að upplýsina almenning um hið sanna og líkir lækningarmættinum við meintar lækningar trúboðans Benny Hinn.
Landlæknisembættið hefur séð ástæðu til að birta greinargerð um detox meðferðina, en þar segir að embættinu hafi borist fjölmargar athugasemdir og fyrirspurnir vegna detoxmeðferðarinnar. „Í þeim kemur fram að fólki blöskrar auglýsingamennska og fullyrðingar um gagnsemi meðferðar sem engar haldbærar rannsóknir virðast til um, að minnsta kosti ekki í vísindaritum, en fullyrt er að um viðurkennda læknisfræðilega meðferð sé að ræða,“ segir í greinargerðinni.
Matthías líkir detox við trúboð
Í viðtali á Rás tvö í dag sagði Matthías að ýmislegt í meðferðinni væri af hinu góða, svo sem hollara mataræði og hreyfing, en hinsvegar væri ristilskolun ekki læknisfræðilega viðurkennd.
„Þegar er farið að kalla einhverja meðferð, sem er út í hött, einsog þessi ristilhreinsun er, þegar farið er að kalla það læknisfræðilega meðferð, þá er skörin farin að færast upp í bekkinn. Þegar fólk spyr okkur, þá verðum við að svara einsog við best vitum. Í greinargerðinni frá Svani (Sigurbjörnssyni) og félögum er vitnað til ýmissa greina og yfirvalda í öðrum löndum, hvaða álit þeira hafa á þessum málum. Og það er skylda landlæknisembættisins samkvæmt lögum að upplýsa almenning um heilbrigðismál.
Jónína hefur ítrekað mótmælt yfirlýsingum landlæknisembættisins og hefur í því skyni vitnað til ánægðra viðskiptavina sinna. Matthías segir ekkert að marka þó einhverjir viðskiptavinir telji ristilskolun af hinu góða.
„Það er alltaf þannig þegar svona meðferð er stunduð, þeim mun fáránlegri sem hún er, því heitari verða áðdáendurnir. Ég man þegar kom hingað trúboði sem lagði hendur yfir fólk og þóttist lækna það, þá voru sumir mjög ánægðir með þá meðferð. Auðvitað sýndi það sig að hún gerði ekkert gagn til lengdar.“
Þá segir Jónína á Pressunni að hún hafi aldrei haldið því fram að meðferð hennar sé byggð á vísindalegum rannsóknum.
„Ég hef aldrei haldið því fram að þetta sé byggt á vísindalegum rannsóknum. Við erum að reka heilsuhótel og þurfum ekkert að sýna fram á vísindalegar rannsóknir,“ segir hún.
Jónína segir lækni vera geðveikan og Matthías ekki starfi sínu vaxinn
Þá hefur hún í tölvupóstum til Landlæknisembættisins kvartað yfir embættismönnum og læknum. Í tölvupósti hennar til embættisins 9. september í fyrra segir hún m.a.:
„Matthías þröngsýni þín segir mér að þú sért starfi þínu ekki vaxinn.“
Í öðrum tölvupósti, 15. desember í fyrra, segir hún Svan Sigurbjörnsson ekki heilan á geði, en Svanur hefur ítrekað gagnrýnt detox meðferðina.
„Mín skoðun, og fleiri, er að Svanur þarfnist geðrannsóknar við,“ skrifar Jónína.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is