Þriðjudagur 15.06.2010 - 08:37 - Ummæli ()

Baktjaldamakk í Brussel? Engin aðild að ESB án fullnaðargreiðslu Icesave

Velkomin eða hafnað? Það er spurningin á fimmtudaginn kemur

Hollenska ríkisútvarpið greinir frá því að Bretar og Hollendingar vinni að því bak við tjöldin á Evrópusambandsheimilinu að umsókn Íslendingar um aðild, sem ákveðin verður á fimmtudag, verði háð því að Íslendingar greiði hvern einasta eyri til baka af því fé sem þjóðirnar tvær hafa lagt út vegna Icesave reikninga Landsbanka Íslands.

Morgunblaðið greinir frá þessu en um er að ræða tæplega fjóra milljarða evra sem Bretar og Hollendingar telja að Íslendingar skuldi. Eins og Eyjan greindi frá í gær hafa engar viðræður átt sér stað milli þjóðanna þriggja á undanförnum vikum og engar slíkar viðræður á döfinni.

Eru þessar upplýsingar, ef réttar eru, á skjön við fyrri yfirlýsingar þjóðanna þess efnis að Icesave deilan per se muni ekki hafa áhrif á umsókn Íslands. Stækkunarstjóri Evrópusambandsins hefur ennfremur sagt að sú deila hafi ekki bein áhrif á umsóknarferlið. Þó sé auðvitað ljóst að finna þurfi lausn á deilunni sem allir geti sætt sig við.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is