Fyrstu verk nýrrar borgar- stjórnar: Fagleg úttekt á OR, kvennakvöld og allskonar
Besti flokkurinn og Samfylkingin kynntu málefnasamning sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Samstarfsyfirlýsingin telur átta blaðsíður og er nokkuð fjölbreytt. Þannig er í hverjum málaflokki bætt við „allskonar“.
Allra fyrstu verkum borgarstjórnar er skipt í fjóra flokka: Borgarbúar, sjálfbært gegnsæi, traustatök og allskonar. Nánar eru þessi atriði fyrstu skrefin:
Borgarbúar
Útigangskonum verði búið öruggt húsaskjól fyrir fyrstu snjóa í haust.
Systkinaforgangur verði tekinn upp í leikskólum.
Ókeypis verði fyrir börn í sund í sumar.
Settur verði upp innileikvöllur í Perlunni.
20 græn svæði og leikvellir borgarinnar verði teknir í gegn í sumar og boðnir borgarbúum til umhirðu. Sérstaklega verði hugað að þörfum ömmu og afa á leiksvæðunum.
Sjálfbært gegnsæi
Vefurinn Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is, verði nýttur til stuðnings við ákvarðanir og stefnumótun.
Opnað verði vefsvæði fyrir ábendingar almennings um aðkallandi viðhald og viðgerðir í borginni.
Dagbók borgarstjóra verði opin og aðgengileg á netinu.
Traustatök
Fagleg rekstrarúttekt verði gerð á Orkuveitu Reykjavíkur.
Nefndum borgarinnar verði fækkað til að auka skilvirkni og spara nefndarlaun.
Langtímaáætlun um fjármál, framkvæmdir, borgarþróun og atvinnumál Reykjavíkur liggi fyrir í lok árs.
Allskonar
Skólar geti áunnið sér sérstakan menningarfána með því að setja sér menningarstefnu og t.d. taka listamenn í fóstur.
Efnt verði til kvennakvölds í Reykjavík.
Reykjavíkurborg styðji við nýtt heimili kvikmyndanna í Regnboganum.
Borgarstjóri verði kjörinn stjórnarformaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Í samstarfsyfirlýsingunni er svo sérstaklega fjallað um lýðræði og þátttöku almennings, m.a. með frekari atkvæðagreiðslum borgarbúa, atvinnumál, umhverfis- og auðlindamál, börn og skóla, samgöngu- og skipulagsmál, fjölskyldu- og velferðarmál og húsnæðismál. Yfirlýsinguna í heild má lesa hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is