Þriðjudagur 15.06.2010 - 14:56 - Ummæli ()

Komst langt á fíflagangi. Jón Gnarr orðinn borgarstjóri Reykjavíkur

Grínisti orðinn borgarstjóri

Jón Gnarr er nýr borgarstjóri Reykjavíkur eftir að hafa tekið við lyklum úr hendi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fráfarandi borgarstjóra.

Lét Jón eftir sér hafa af tilefninu að kennari sinn einn í barnaskóla hefði haft á orði að hann kæmist aldrei langt á fíflagangi. Hann hefði nú afsannað þá kenningu með öllu. Segir Smugan frá því að Jón segir Besta flokkinn það skemmtilegasta sem hann hafi gert um ævina.

Fyrr í dag kom fram að Hanna Birna mun taka við embætti forseta borgarstjórnar en fulltrúar minnihlutans í borginni fá formennsku í hverfaráðum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is