Nýtt ummælakerfi Eyjunnar vekur lukku. Annar notandi vinnur iPhone
Ný og breytt Eyja virðist fara afar vel í lesendur og fjölgar þeim jafnt og þétt sem skráð hafa sig sem notendur og tekið beinan þátt í samfélagsumræðunni um hin ýmsu mál er á þjóðinni brennur. Vel rúmlega tvö þúsund einstaklingar hafa skráð sig og tjáð sig tæplega ellefu þúsund sinnum á aðeins þremur vikum.
Eins og lesendur vita tók Eyjan.is nokkrum breytingum fyrir skömmu og þurfa nú allir sem vilja tjá sig á vefnum að skrá sig formlega. Ekki aðeins geta viðkomandi tekið þátt heldur einnig gefið öðrum notendum einkunnir um skrif þeirra og rök við fréttum og öðru á vef Eyjunnar.
Annar skráður notandi vefsins vann iPhone 3G síma í samkeppni Eyjunnar. Guðmundur Eyjólfur Jóelsson var sá heppni en áður hafði Elín Erna Steinarsdóttir unnið einn slíkan.
Starfsfólk Eyjunnar þakkar góð viðbrögð.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
