Þriðjudagur 15.06.2010 - 12:52 - Ummæli ()

Sigmundur Davíð: Flensa og fundir útskýra fjarveru frá þinginu

Flensa setti strik í reikning Sigmundar Davíðs

Flensa og fundir á landsbyggðinni útskýra tíða fjarveru Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, frá Alþingi að undanförnu en athygli hefur vakið hve lítið formaðurinn hefur sinnt starfi sínu upp á síðkastið án þess að tilkynna formlega fjarvist.

Segir Sigmundur við DV að eðlilegar skýringar séu á fjarverunni enda fundahöld á landsbyggðinni tekið mikinn tíma. Þá hafi hann misst af þingfundum vegna flensupestar.

Fjölmörg veigamikil frumvörp hafa verið samþykkt í fjarveru formannsins frá þinginu. Meðal þeirra frumvörp um ný hjúskaparlög, fjármálafyrirtæki, framhaldsskóla og heilbrigðisþjónustu svo fátt sé nefnt.

Sigmundur Davíð segir reyndar sér til varnar að töluvert sé nú um að skellt sé á atkvæðagreiðslum fyrirvaralaust á þinginu og það hafi verið gagnrýnt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is