Miðvikudagur 16.06.2010 - 09:13
- Ummæli
()
John Travolta (56): Flaug til Suður Afríku til að sýna Áströlum stuðning
Leikarinn John Travolta er lentur í Suður Afríku en þangað hélt hann til að sýna landsliði Ástrala stuðning sinn.
Hann lenti Boeing 707 þotu sinni á Lanseria flugvellinum sem liggur í grennd við Jóhannesarborg en með í för voru kona hans Kelly Preston, sem er barnshafandi, og dóttir þeirra Ella.
John Travolta sýndi stuðning sinn enn fremur með því að setja upp ástralskan Socceroos trefil.
Hann hefur árum saman verið hliðhollur Áströlum í fótbolta og er meðal annars velgjörðarmaður Quantas Airlines sem eru helstu styrktaraðilar liðsins á heimsmeistaramótinu.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is