Ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að bregðast við dómi um ólögleg gengislán
Ríkisstjórnin boðar viðbrögð við nýföllnum dómi Hæstaréttar, sem komst að þeirri niðurstöðu að gengistryggð lán væru ólögleg. Ekki liggur fyrir í hverju viðbrögð stjórnvalda muni felast nema það að ákvarðanir verði teknar á grundvelli greiningar um áhrif niðurstöðunnar á viðskipti fjármálafyrirtækja og lántakenda.
Þannig má búast við að stjórnvöld ætli ekki að láta mál lánanna ganga fyrir sig að sjálfu sér, heldur verði þeim mætt með einhvers konar lagasetningu.
Í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu eftir að dómur féll segir:
„Hæstiréttur hefur kveðið upp dóma í málum er varða lögmæti gengistryggðra lána. Þessi mál varða fyrst og fremst aðila máls en hafa einnig almenn áhrif á viðskipti fjármálafyrirtækja og lántakenda. Stjórnvöld hafa fylgst náið með ferli þessara dómsmála og hafa látið greina ítarlega áhrif mögulegra niðurstaðna Hæstaréttar.
Ákvarðanir um aðgerðir af hálfu stjórnvalda verða teknar á grundvelli þessarar greiningar. Nánar verður skýrt frá þeim ákvörðunum á allra næstu dögum og í framhaldi af umfjöllun ríkisstjórnarinnar og að höfðu víðtæku samráði um málið.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is