Fimmtudagur 17.06.2010 - 08:43 - Ummæli ()

Forseti Íslands: Icesave veitti þjóðinni styrk

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave-málið hafi veitt þjóðinni styrk, samstaða hennar og sjálfsöryggi hafi eflst. Hrakspár um afleiðingar þess að vísa málinu til þjóðarinnar hafi ekki ræst og þvert á móti sé staða hennar sterkari nú en hún var um áramót.

„Forsetinn á ekki að láta hræða sig frá ákvörðunum, sem hann telur réttar, þótt ýmsir reyni að setja afgerandi þrýsting á hann með hrakspám af þessu tagi,“ segir Ólafur Ragnar. „Meðal annars var fullyrt að með synjun staðfestingar á lögunum myndi ég bera ábyrgð á gífurlegu efnahagslegu tjóni þjóðarinnar, ég myndi bera ábyrgð á því að öll tengsl okkar við alþjóðafjármálaheiminn lokuðust, ég myndi bera ábyrgð á því að Ísland yrði útskúfað og þar fram eftir götunum. Það er ánægjulegt að staða þjóðarinnar er efnahagslega sterkari í dag en hún var um síðustu áramót.“

Ólafur bendir einnig á að forseti Íslands megi ekki forðast að taka ákvarðanir í málum sem kynnu að valda ágreiningi af ótta við að skuggi myndi falla á sameiningartáknið. „Ef forsetinn hugsaði fyrst og fremst um það hlutverk, sem kallað er sameiningartákn, væri hætta á því að hann myndi bregðast skyldum sínum innan stjórnkerfisins, jafnt bæði þeim sem varða 26. grein stjórnarskrárinnar og við stjórnarmyndanir. Hann þarf að geta tekið ákvarðanir þó að þær leiði til ágreinings ef hann er sannfærður um að þær séu réttar vegna þess að þær muni skapa festu í stjórnkerfinu.“

Forsetinn segir ljóst að ýmislegt hafi verið ofsagt í sínum málflutningi á tímum útrásarinnar, en einnig hafi of mikið verið gert úr áhrifum orða sinna. Hættulegt sé að halda að allir fyrirlíti Íslendinga fyrir þennan málflutning og það eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Ólafur Ragnar kveðst telja að á undanförnum misserum höfum við ef til vill verið minnt meira á það en á árunum á undan að sjálfstæðið geti verið brothætt og að í kjölfar bankahrunsins hafi Íslendingar verið minntir á að sjálfsákvörðunarréttur þjóðar er ekki sjálfgefinn.

Ólafur segist telja að sú ákvörðun að vísa Icesave-málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu, hvernig hún fór fram og niðurstaða hennar hafi tvímælalaust styrkt stöðu Íslendinga í alþjóðasamfélaginu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is