Fimmtudagur 17.06.2010 - 09:54
- Ummæli
()
Landsvirkjun gekk í gær frá nýjum sölusamningum. Tenging heimsmarkaðsverðs á áli við söluverð raforku til álversins í Straumsvík verður afnumin og miðað við verðtryggt verð í dollurum.
Landsvirkjun endursemur um raforkuverð
Landsvirkjun gekk í gær frá nýjum sölusamningum. Tenging heimsmarkaðsverðs á áli við söluverð raforku til álversins í Straumsvík verður afnumin og miðað við verðtryggt verð í dollurum.Næmi reksturs Landsvirkjunar fyrir breytingum á heimsmarkaðsverði minnkar um þriðjung eftir að fyrirtækið endursamdi um sölu á raforku til álversins í Straumsvík. Þetta segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar í samtali við Morgunblaðið. Í raun feli samningurinn í sér hækkun á raforkuverði Landsvirkjunar. Hið nýja raforkuverð tekur gildi í október á þessu ári. Í stað tengingar í við álverð verður notast við verðtryggingu, en neysluverðsvísitala í Bandaríkjunum mun þar liggja til grundvallar.
Fram kemur í ársreikningi Landsvirkjunar fyrir árið 2010 að 10% lækkun á álverði í heimindum hafi neikvæð áhrif á rekstur Landsvirkjunar um sem nemur tæplega 21 milljón dollara. Til samanburðar nam hagnaður Landsvirkjunar á síðasta ári rúmlega 192 milljónum dollara. Nýlega sendi greiningardeild Barclay’s-bankans frá sér spá um álverðsþróun fram til loka þessa árs, en þar er verðlækkunin talin munu nema 12%. Sé miðað við 12% lækkunina sem Barclays spáir er óhætt að miða við 22-23 milljón dollara áhrif, eða sem nemur tæpum þremur milljörðum króna miðað við gengi dagsins í dag. Orkusölusamningar Landsvirkjunar gæti þó bætt stöðuna að einhverju leyti, þar sem álverðstengingin er minnkuð um þriðjung í heildarorkusölu fyrirtækisins.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is