Föstudagur 18.06.2010 - 21:00 - Ummæli ()

Eminem styður hjónabönd samkynhneigðra: Allir hafa jafnan rétt á ömurlegu lífi

Rapparinn heimsfrægi lét hafa þetta eftir sér í viðtali við New York Times en hann hefur áður verið ásakaður um að vera á móti samkynhneigð og þeim sem samkynhneigð eru.

„Ef tvær manneskjur elska hvor aðra þá sé ég ekki af hverju allir ættu ekki að hafa jafnan rétt á að verða óhamingjusamir,“ sagði Eminem sem réttu nafni heitir Marshall Mathers.

Eminiem er núna að gefa út plötu sem hann kallar Recovery en hún er byggð á reynslusögum kappans af viðureigninni við eiturlyfjadjöfulinn.

„Vicodin, valíum og ambien eru efnin sem voru við það að draga mig til dauða,“ sagði hann í viðtalinu en hann hefur nokkrum sinnum verið lagður inn á spítala og farið í meðferðir vegna fíknar sinnar. Í dag er hann edrú og segir m.a. börnin sín hafa hjálpað sér að rata réttu leiðina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is