Verður sjálfkjörið í embætti formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokks?
Allt stefnir í að sjálfkjörið verði í bæði formanns- og varaformannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn verður um næstu helgi. Enn hafa aðeins Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal lýst yfir framboði í embættin.
Tvær aðrar konur hafa kannað stöðu sína undanfarnar vikur með varaformannsembættið í huga. Þetta eru þær Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, og Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður í Suðurkjördæmi. Hanna Birna gaf slaginn frá sér fyrr í vikunni og í dag lýsti Ragnheiður Elín því sama yfir í viðtali á mbl.is.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar innan Sjálfstæðisflokksins hafa þær báðar einfaldlega metið stöðuna þannig að þær yrðu að láta í minni pokann fyrir Ólöfu Nordal. Í síðustu viku fékk Ragnheiður Elín stuðningsyfirlýsingu frá ungliðahreyfingu flokksins í Vestmannaeyjum og var ætlunin að hreyfa við fleiri félögum, en svo virðist sem frekari stuðning hafi einfaldlega skort.
Ragnheiður Elín segist þó á mbl.is hafa fundið fyrir mikilli hvatningu, en hafi samt ákveðið að sitja hjá að þessu sinni.
„Ég ætla að einbeita mér að því að byggja kjördæmið upp og gera það enn sterkara. Síðan hef ég tekið að mér hlutverk í forystu flokksins, með því að vera þingflokksformaður, og þar er einsog sést á annríki síðustu vikna af nógu að taka, þannig að þessu sinni ætla ég ekki að gefa kost á mér á landsfundi flokksins.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
