Sunnudagur 20.06.2010 - 11:33 - Ummæli ()

Opna bandaríska golfmótið: Tiger Woods sýnir loks snilld sína á ný

Nær Tiger Woods sínum fimmta titli á Opna bandaríska mótinu?

Eftir annan daginn á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, sem fram fer á Pebble Beach vellinum, voru flestir búnir að afskrifa Tiger Woods enda kappinn ekki sýnt sitt rétta form síðan hann kom úr sjálfsskipaðri útlegð eftir framhjáhald sitt.

Eftir 74 högg fyrsta daginn og 72 þann næsta sáust loks gamlir neistar hjá Woods þriðja daginn í gær þegar hann fór hamförum á 66 höggum og er í þriðja sætinu fyrir lokadaginn í dag.

Opna bandaríska meistaramótið er með þeim allra stærstu og þar hefur Woods þegar hampað sigri fjórum sinnum áður. Hann hefur þó ekki unnið stóran titil síðan árið 2008 og þrátt fyrir að ná fjórða sætinu á Masters mótinu fyrir nokkru sáust þar lítil merki um þann leik sem Woods getur sannarlega leikið þegar hann er upp á sitt besta.

Fyrir lokadaginn er hann nú fimm höggum á eftir efsta manni, Bandaríkjamanninum Dustin Johnson, og tveimur höggum á eftir Graeme McDowell í öðru sætinu. Tölfræðin sýnir reyndar að Tiger Woods hefur aldrei unnið stóran titil þegar hann er ekki efstur fyrir lokadaginn en nái hann að spila í dag eins og í gær er engin efi í hugum golfáhugamanna að því getur hann breytt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is