Viðskipti Sunnudagur 20.06.2010 - 11:04 - Ummæli ()

Útboð vegna Búðarhálsa- virkjunar auglýst. Framkvæmdir með haustinu

Svona mun Búðarhálsvirkjun líta út fullkláruð

Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun gætu hafist strax með haustinu en kostnaðurinn, um 30 milljarðar króna, verður að langstærstum hluta tekinn að láni erlendis frá samkvæmt upplýsingum RÚV.

Virkjunin verður fyrsta stórverkefni Landsvirkjunar hérlendis eftir bankahrunið í október 2008 en síðan þá hafa meira eða minna áætlanir fyrirtækisins verið á ís.

Útboðið var auglýst í fjölmiðlum í gær en gert er ráð fyrir að framkvæmdir við stíflugerðina, aðrennslisgöng og stöðvarhús geti hafist á haustmánuðum.

Virkjun þessi verður ekki langt frá Hrauneyjafossvirkjun og mun framleiða 80 megawött af rafmagni fullkláruð. Áætlanir gera ráð fyrir að hún taki til starfa að þremur árum liðnum og allt rafmagn mun fara beint til álvers Alcan í Hafnarfirði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is