Viðskipti Þriðjudagur 22.06.2010 - 18:37 - Ummæli ()

Ólöglegu gengistryggðu lánin fóru framhjá fjölda lögfræðinga FME

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins vonast til að mál á borð við ólöglegu gengislánin muni ekki endurtaka sig.

Tugir, ef ekki hundruð lögfræðinga hafa skoðað gengistryggð lán frá því þau buðust fyrst árið 2001 en ekki fundið að þeim. Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í kvöldfréttum RÚV að stofnunin myndi gera sitt til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.

Fjármálaeftirlitið fer nú yfir útreikninga á stöðu fjármálafyrirtækja í kjölfar dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán. Gunnar segir eftirlitið vinna í samráði við fleiri hópa við að meta áhrifin á eiginfjárstöðu bankanna og hvaða kröfu um eigið fé Fjármálaeftirlitið geri í kjölfarið.

Hann segir að í einhverjum tilvikum kunni þessi nýja staða að hafa áhrif á eiginfjárstöðu fjármálafyrirtækja, en það sé misjafnt og staðan það flókin að ekki sé hægt að fullyrða um það. Þá segir hann að FME vonist til að svona lagað gerist ekki aftur.

„Vinnulag Fjármálaeftirlitsins hefur breyst alveg frá hruni. Við höfum verið að endurskoða vinnulag og kkar og verklagsreglur og nálgun í eftirliti. Þetta bara undirstrika að það þarf að skoða afurðir fyrirtækja til að fyrirbyggja að eitthvað þessu líkt gerist aftur,“ sagði Gunnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is