Íbúðalánasjóður tapaði milljörðum á spákaupmennsku
Íbúðalánasjóður tók mikla áhættu í árslok 2007 og tapaði um 6 milljörðum króna á viðskiptum með skuldatryggingar Kaupþings við fall bankans.
Sjóðurinn veðjaði um 10 milljörðum króna á að Kaupþing myndi geta haldið áfram að standa í skilum við lánardrottna sína og forðast greiðslufall. Um var að ræða framvirka samninga sem Íbúðalánasjóður gerði við Straum um skuldatryggingar Kaupþings í árslok 2007. Bankahrunið um haustið 2008 sýndi fram á að þessi spá var ekki raunhæf þar sem bankarnir fóru á hliðina og lá þá ljóst fyrir að Íbúðalánasjóður myndi tapa á viðskiptunum. Frá þessu er greint í DV í dag.
Nú er kominn upp ágreiningur á milli Íbúðalánasjóðs og slitastjórnar Straums um hvort sjóðurinn eigi að greiða um 3 milljarða króna til baka til bankans vegna þess að Straumur hafi í raun gefið þessa upphæð eftir til Íbúðalánasjóðs þegar framvirku samningarnir voru gerðir upp eftir bankahrunið.
Slitastjórnin vill slíta samningnum um uppgjörið en Guðmundur Bjarnason, fráfarandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur sagt að það verði ekki gert. Líklegt verður því að teljast að ágreiningurinn muni fara fyrir dóm.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is