Kaupmenn maka krókinn. Engar verðlækkanir þrátt fyrir sterkari krónu

Innfluttar mat- og drykkjarvörur hafa hækkað um 70 prósent á tveimur árum
Að mati verðlagsráðs Alþýðusambands Íslands er fullt tilefni til að kaupmenn landsins lækki vöruverð sín í takt við töluverða styrkingu krónu undanfarin misseri en á því bólar ekkert. Þvert á móti halda vörur áfram að hækka í verði en innflutt matvara hefur sem dæmi hækkað um 70 prósent frá árinu 2008.
Gerir ASÍ athugasemdir við þau rök kaupmanna að verslun í landinu hafi þegar tekið á sig mikla afkomuskerðingu vegna veikrar stöðu íslensku krónunnar.
„Sé verðþróun innfluttra vara skoðuð frá ársbyrjun 2008 þegar krónan tók að veikjast má sjá að verðlag á helstu flokkum innfluttra neysluvara hækkaði framan af nokkurn veginn samhliða veikara gengi krónunnar en hefur nú, þrátt fyrir styrkingu, ýmist haldið áfram að hækka eða nánast staðið óbreytt undanfarna mánuði.“
Þá bendir ASÍ ennfremur á að auk innkaupsverðs ráðist endanlegt verð innfluttra vara af ýmsum innlendum kostnaðarþáttum sem ljóst sé að hafa ekki hækkað í viðlíka takti og gengi krónunnar.
„Þannig eru engin tilefni til þess að verðlag innfluttra vara hækki í fullu samræmi við veikara gengi krónunnar og ekki verður af þessu ráðið að veik staða krónunnar sé það eina sem skýri miklar verðhækknir á innfluttum vörum undanfarin misseri.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is