Viðskipti
Fimmtudagur 24.06.2010 - 17:32
- Ummæli
()
Kristján Þór gerir ekki ráð fyrir því að bjóða sig fram til formanns
Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, gerir ekki ráð fyrir að hann gefi kost á sér til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Það stefnir því allt í að Bjarni Benediktsson verði einn í framboði til formanns, þó að vissulega sé heimilt að kjósa hvern sem er án þess að formlegt framboð liggi fyrir.
Kristján Þór var í framboði gegn Bjarna í fyrra og beið þá lægri hlut með 40,4 prósent atkvæða, en Bjarni fékk 58,1 prósent. Kristján Þór hefur ekki viljað gefa afsvar um formannskjör en gengur nokkuð langt í því á Vikudegi í dag:
„Fyrsta atriðið er það að það eru allir í kjöri á landsfundi en ég geri ekki ráð fyrir því að ég gefi kost á mér. Það að flokkurinn stilli saman krafta sína er miklu mikilvægara en einhverjar persónur. Það sem er mest áríðandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn er að stilli saman strengi sína og krafta. Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá stofnun sinni verið ein öflugasta fjöldahreyfing landsins. Það afl sem býr innra með flokknum þarf að virkja enn betur til að hægt sé að brjótast út úr þeirri stöðnun sem núverandi ríkisstjórn er að kalla yfir íslenskt samfélag,” segir Kristján Þór.
Býst við tíðindum af fundinum
Kristján Þór býst við tíðindum af landsfundinum, þó að hann fari ekki nánar út í það í hvaða málaflokkum það verði.
„Þetta hefur alltaf verið samkoma sem er uppspretta einhverja tíðinda og það kæmi mér ekkert á óvart að það yrði sitthvað sem kæmi fram á fundinum sem myndi tíðindum sæta,” segir Kristján.
Nokkur spenna ríkir í flokknum vegna Evrópumála, en þó liggur ekki fyrir hvort lögð verður fram tillaga um að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka. Einsog Eyjan sagði frá í gær hafa sjálfstæðismenn sem styðja umsóknarferlið íhugað að segja skilið við flokkinn, verði slík ályktun samþykkt á fundinum.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is